Sr. Erla Björk komin aftur til starfa
- oddurbjarni
- 3 days ago
- 1 min read
Nú er hún sr. Erla Björk okkar komin aftur til starfa að loknu veikindaleyfi, frá og með deginum í dag - 1. júní.
Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til baka, hennar hefur sannarlega verið saknað ! Og þá hefst síðasti mánuðurinn sem að Þórey Dögg djákni starfar í prestakallinu, en hún lýkur störfum hér í lok júní. Getum við vart nógsamlega þakkað hennar framlag allt frá haustdögum 2025. sr. Oddur Bjarni mun svo fara í sumarfrí um miðjan mánuðinn, fer aðeins eftir hvernig stendur á spori hvað verkefni varðar.



Comments