top of page

Guðsþjónustur 1. nóvember -

oddurbjarni
Oct 28
1 min read

Úr fjölmörgum guðsþjónustum er hægt að velja sunnudaginn 1. nóvember næstkomandi, en þá er allra heilagra messa.


Stærri-Árskógskirkja kl. 11.00

Guðsþjónusta þar sem látinna verður minnst. Sálmasöng annast Samkórinn undir stjórn Þórðar Sigurðarsonar og sr. Erla Björk þjónar. Hlý samvera þar sem við hugsum til þeirra sem við söknum.


Hríseyjarkirkja kl. 14.00

Bleik guðsþjónusta, þar sem að Brynja Harðardóttir Tveiten verður með hugvekju. Við syngjum öll saman sálma, við undirleik Þórðar Sigurðarsonar. Sr. Oddur Bjarni þjónar


Glæsibæjarkirkja kl. 20.00 - prjónamessa / Himinn og jörð.

Við syngjum öll saman lög eftir Gunnar Þórðarson. Meðlimir úr kórnum annast undirleik og sr. Oddur Bjarni þjónar og hefur umsjón. Góð og notaleg samvera og endilega kippið prjónunum með og skellið í eins og eina ermi. Einnig verður látinna minnst -


Dalvíkurkirkja kl. 20.00. Allra-heilagra guðsþjónusta.

Falleg kvöldsamvera þar sem tendrað verður á ljósi fyrir þeim sem hafa kvatt frá síðustu Allra heilagra messu. Samkórinn syngur undir stjórn Þórðar Sigurðarsonar. Sr. Erla Björk þjónar.

Gott að koma saman og minnast með hlýju í hug og hjarta.


 
 
 

Comments


bottom of page