top of page

Bleikar guðsþjónustur 4. október

oddurbjarni
Oct 1
1 min read

Kæru vinir - á sunnudaginn kemur. 4. október verða þrjár bleikar guðsþjónustur og þar fáum við marga góða gesti sem deila með okkur reynslu sinni og rödd.


kl. 11.00 í Dalvíkurkirkju. Ræðumaður verður Hólmfríður Guðrún Skúladóttir sem deilir reynslu sinni sem aðstandandi og störfum í kringum verkefnið "Bleika slaufan". Lionsklúbburinn Sunna selur slaufur í lok guðsþjónustu. Samkórinn syngur undir stjórn Þórðar Sigurðarsonar og sr. Erla Björk Jónsdóttir þjónar og leiðir.


kl. 13.00 í Möðruvallaklausturskirkju. Ræðumaður verður Hólmfríður Guðrún Skúladóttir sem deilir reynslu sinni sem aðstandandi og störfum í kringum verkefnið "Bleika slaufan".Lionsklúbburinn Sunna selur slaufur í lok guðsþjónustu. Kirkjukór Möðruvallaklausturskirkju syngur undir stjórn Sigrúnar Mögnu og sr. Erla Björk Jónsdóttir þjónar og leiðir.


Kl. 20.00 í Stærri-Árskógskirkju. Ræðumaður verður Monika Margrét Stefánsdóttir og Samkórinn syngur undir stjórn Þórðar Sigurðarsonar. Lydía Rós Björnsdóttir Waage flytur okkur lög sem kántrídrottningin Dolly Parton söng, en hún kvaddi nú nýverið eftir baráttu við krabbamein. Stundina leiðir sr. Oddur Bjarni Þorkelsson

 
 
 

Comments


bottom of page