top of page

...og lífið gengur sinn gang.

  • oddurbjarni
  • Sep 16, 2024
  • 1 min read

Haustið er komið og safnaðarstarf er smám saman að skríða af stað. Hér er svona það helsta og næsta í tíma.

Kórastarf

Kórar eru byrjaðir að æfa og ef það blundar nú í þér hvort tveggja söngvari og þörf fyrir frábæran félaggskap, þá endilega hafðu samband við organistana okkar. Þórður Sigurðarson hefur tögl og hagldir í Hrísey og hjá Samkór Dalvíkurbyggðar (sem telur til Stærri-Árskógskirkju og kirkjurnar í Dalvíkursókn) en Sigrún Magna Þórsteinsdóttir stjórnar kirkjukór Möðruvalla. Nýtt fólk er alltaf velkomið.

Bænastundir. Bænastundir eru á sínum stað, í hádeginu á miðvikudögum í Dalvíkurkirkju. Þórður sest við hljóðfærið kl. 12.00 og kl. 12.15 hefst bænagjörðin, sem endar með samfélagsmáltíð í Safnaðarheimilinu. Oft gleðja okkur óvæntir gestir, svo endilega komið og njótið. Fyrsti Sunnudagaskólinn í vetur í Dalvíkurkirkju verður kl. 10.00 sunnudaginn 29. september Það verður líf og fjör! Og það verður líka líf og fjör þegar Fjölskylduguðþjónusta verður haldin í Hríseyjarkirkju 22. september kl. 14.00 - Erla og Þórður leika við hvurn sinn fingur -

Hlökkum til að sjá ykkur!

 
 
 

Recent Posts

See All
Ferming í Urðakirkju

Þá er komið að síðustu fermingunni í prestakallinu - en 6. júní kl. 10.30 munu 4 dásemdar ungmenni staðfesta skírnarheitið í Urðakirkju. Við óskum þeim og fjölskyldum þeirra allrar blessunar og hjart

 
 
 
Sr. Erla Björk komin aftur til starfa

Nú er hún sr. Erla Björk okkar komin aftur til starfa að loknu veikindaleyfi, frá og með deginum í dag - 1. júní. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til baka, hennar hefur sannarlega verið saknað !

 
 
 

Comments


bottom of page