top of page

Mottumars - messa

  • oddurbjarni
  • 3 minutes ago
  • 1 min read

Sunnudagskvöldið 15. mars kl. 20.00 verður guðsþjónusta í Dalvíkurkirkju í anda Mottumars þar sem við hugsum til allra þeirra sem krabbamein hefur sett mark sitt á með einum eða öðrum hætti.


Karlakór Dalvíkur annast allan söng af fullum þunga og með hormónin í hámarki!


Ingimar Guðmundsson sjúkraþjálfari flytur okkur hugvekju um sína reynslu af því að fá þennan vágest inn í líf fjölskyldunnar



Einnig viljum við vekja athygli á söfnuninni sem var hrundið af stað til að styðja fjölskyldu Úlfars litla sem greindist með krabbamein. Þegar lífið skyndilega færir fólk svona ógnvænlegt verkefni er mikilvægt að allir hjálpist að. Hægt er að veita fjárhagsstuðning með því að nýta sér eftirfarandi :

Reikningsupplýsingar eru

Rn 0123-15-247041

kt 250590-2109


Eigum saman góða og gefandi stund !

 
 
 

Comments


bottom of page