Fermingar um hvítasunnu
- oddurbjarni
- 5 days ago
- 1 min read

Fermingarmessur í Dalvíkurprestakalli um hvítasunnuhelgina verða sem hér segir:
Laugardagur 23. maí
Kl. 10.30 fermast 7 ungmenni í Dalvíkurkirkju. Athöfnina annast sr. Oddur Bjarni og Þórey Dögg djákni. Tónlist á höndum Þórðar Sigurðarsonar og Samkórs Dalvíkurbyggðar.
kl. 14.00 fermast 3 ungmenni í Hríseyjarkirkju. Athöfnina annast sr. Oddur Bjarni og Þórður Sigurðarson annast tónlist. Hvítasunnudagur 24. maí
Kl. 10.30 fermast 6 ungmenni í Dalvíkurkirkju. Athöfnina annast sr. Oddur Bjarni og Þórey Dögg djákni. Tónlist á höndum Þórðar Sigurðarsonar og Samkórs Dalvíkurbyggðar.
Kl. 12.30 fermast 11 ungmenni í Möðruvallaklausturskirkju. Athöfnina annast sr. Oddur Bjarni og tónlist er á höndum Sigrúnar Mögnu organista og kirkjukórsins.
Kl. 13.00 fermast 3 ungmenni í Stærri-Árskógskirkju. Athöfnina annast sr. Erla Björk og Þórey Dögg djákni. Tónlist á höndum Þórðar Sigurðarsonar og Samkórs Dalvíkurbyggðar.
Við óskum öllu þessu fallega unga fólki og fjölskyldum þeirra Guðs blessunar og hjartanlega til hamingju með þessi dásamlegu tímamót



Comments