top of page

Aðventuhátíð í Möðruvallaklausturskirkju

oddurbjarni
10 hours ago
1 min read

"Hans koma nálgast fer..."

Fyrsta sunnudag aðventu kl. 17.00, 29. nóvember verður haldin aðventuhátíð í Möðruvallakirkju fyrir alla fjölskylduna.

Leikhópur barna gleður okkur með jólaguðspjallinu. Kirkjukórinn syngur dásamleg lög undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur organista - og svo verður fullt af góðum gestum: Katrín Karlinna Sigmundsdóttir og Ronja Sif Björk leika á flautu. Lára Rún Keel Kristjánsdóttir leikur á trompet og Mahaut Ingiríður Matharel leikur á hörpu.

Hugleiðingu flytur okkur listakonan Aðalheiður S. Eysteinsdóttir og svo syngjum við saman aðventu- og jólalög.

Að stund lokinni er svo samfélag í Leikhúsinu og auðvitað kakó og kökur -

 
 
 

Comments


bottom of page