Aðventuhátíð í Hríseyjarkirkju
oddurbjarni
10 hours ago
1 min read

Laugardaginn 28. nóvember verður aðventuhátíð í Hríseyjarkirkju fyrir alla fjölskylduna kl. 16.00 -
Börnin flytja okkur jólaguðspjallið og við syngjum með.
Þórður Sigurðarson annast tónlist með sr. Odd Bjarna sér til stuðnings
Við njótum fallegrar hugvekju og auðvitað syngjum við saman lög sem hæfa aðventunni.
Að stund lokinni verður síðan haldið í kirkjugarðinn og tendrað á leiðalýsingunni.



Comments