top of page

Okkur vantar frábæran kórstjóra og organista!

  • oddurbjarni
  • May 22, 2023
  • 1 min read


Laust staða organista í Dalvíkurprestakalli.


3 sóknir innan Dalvíkurprestakalls; Dalvíkursókn, Stærri-Árskógssókn og Hríseyjarsókn, óska eftir að ráða organista til starfa frá og með 1. september næstkomandi. Um er að ræða 65-70% stöðu.


Auk orgelleiks við helgihald, annast viðkomandi kórstjórn í áðurtöldum sóknum. Tekið skal fram að kórar starfa saman. Farið er fram á að umsækjandi hafi lokið prófi í kirkjutónlist frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar, eða sambærilegri stofnun og hafi reynslu í orgelleik og þá ekki síður í kórstjórn.


Leitað er eftir einstaklingi sem er hvetjandi og frjór kórstjóri, býr yfir hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleika í starfi. Viðkomandi mun starfa náið með kórstjórn, sóknarnefndum og prestum Dalvíkurprestakalls.


Starfskjör, réttindi og skyldur eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Þjóðkirkjunnar og FÍO / organistadeildar FÍH. Umsóknum, ásamt afritum af prófskírteinum og ferilskrá, skal skila eigi síðar en 14. júní. Samþykki fyrir öflun upplýsinga þarf einnig að fylgja umsókninni, tengil á eyðublaðið má finna hér. https://kirkjan.is/library/Images/Frettamyndir/Skjol-vegna-fretta/samthykki-fyrir-oflun-upplysinga-ur-sakaskra.pdf

Að öðru leyti er vísað til starfsreglna um organista nr 823/1999


Umsóknir skal vinsamlegast senda á oddur.bjarni.thorkelsson@kirkjan.is


Frekari upplýsingar veitir Oddur Bjarni Þorkelsson í síma 895-6728, einnig má senda fyrirspurn á ofangreint póstfang.


Sóknarnefndir Dalvíkursóknar, Stærri-Árskógssóknar og Hríseyjarsóknar.


 
 
 

Recent Posts

See All
Ferming í Urðakirkju

Þá er komið að síðustu fermingunni í prestakallinu - en 6. júní kl. 10.30 munu 4 dásemdar ungmenni staðfesta skírnarheitið í Urðakirkju. Við óskum þeim og fjölskyldum þeirra allrar blessunar og hjart

 
 
 
Sr. Erla Björk komin aftur til starfa

Nú er hún sr. Erla Björk okkar komin aftur til starfa að loknu veikindaleyfi, frá og með deginum í dag - 1. júní. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til baka, hennar hefur sannarlega verið saknað !

 
 
 

Comments


bottom of page