top of page

Fermingar um hvítasunnu

  • oddurbjarni
  • May 20
  • 1 min read

Fermingarmessur í Dalvíkurprestakalli um hvítasunnuhelgina verða sem hér segir:


Laugardagur 23. maí

Kl. 10.30 fermast 7 ungmenni í Dalvíkurkirkju. Athöfnina annast sr. Oddur Bjarni og Þórey Dögg djákni. Tónlist á höndum Þórðar Sigurðarsonar og Samkórs Dalvíkurbyggðar.


kl. 14.00 fermast 3 ungmenni í Hríseyjarkirkju. Athöfnina annast sr. Oddur Bjarni og Þórður Sigurðarson annast tónlist. Hvítasunnudagur 24. maí

Kl. 10.30 fermast 6 ungmenni í Dalvíkurkirkju. Athöfnina annast sr. Oddur Bjarni og Þórey Dögg djákni. Tónlist á höndum Þórðar Sigurðarsonar og Samkórs Dalvíkurbyggðar.


Kl. 12.30 fermast 11 ungmenni í Möðruvallaklausturskirkju. Athöfnina annast sr. Oddur Bjarni og tónlist er á höndum Sigrúnar Mögnu organista og kirkjukórsins. Kl. 13.00 fermast 3 ungmenni í Stærri-Árskógskirkju. Athöfnina annast sr. Erla Björk og Þórey Dögg djákni. Tónlist á höndum Þórðar Sigurðarsonar og Samkórs Dalvíkurbyggðar. Við óskum öllu þessu fallega unga fólki og fjölskyldum þeirra Guðs blessunar og hjartanlega til hamingju með þessi dásamlegu tímamót

 
 
 

Recent Posts

See All
Ferming í Urðakirkju

Þá er komið að síðustu fermingunni í prestakallinu - en 6. júní kl. 10.30 munu 4 dásemdar ungmenni staðfesta skírnarheitið í Urðakirkju. Við óskum þeim og fjölskyldum þeirra allrar blessunar og hjart

 
 
 
Sr. Erla Björk komin aftur til starfa

Nú er hún sr. Erla Björk okkar komin aftur til starfa að loknu veikindaleyfi, frá og með deginum í dag - 1. júní. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til baka, hennar hefur sannarlega verið saknað !

 
 
 

Comments


bottom of page